Kennópí(k)urnar

Kennópí(k)urnar

22.10.2008 10:26:25 / leikskoli

Félag leikskólakennar

Jæja stelpur þá ætla ég að bögga ykkur ennþá meira heheheh
Miðvikudaginn 29 október frá kl 17, er félag leikskólakennara með fagnað til heiðurs ný útskrifuðum leikskólakennurum !!!
Ég vil hvetja ykkur til þess að mæta og sýna með því þakklæti :haha:
það þarf að tilkynna mætingu á mailið inga@ki.is
kv. Nína

minni svo á partýið næsta laugardagskvöld !!!! Hlakka til að sjá ykkur

» 11 hafa sagt sína skoðun

15.10.2008 21:21:00 / leikskoli

Bekkjarpartý vúhú !!!!

Jæja þá er komið að því.... búið er að ákveða að bekkjarpartý verði laugardagskvöldið 25 október kl 20 :haha: Herlegheitin munu vera haldin heima hjá mér, heimilsfang mun ég senda ykkur á khí mailið :haha:
vonast til að sjá ykkur sem flestar
kv. Nína
p.s endilega kommenti hvort þið komið eður ei ;)
p.p.s munið að koma með næg drykkjarföng 8|


» 17 hafa sagt sína skoðun

14.09.2008 21:45:24 / leikskoli

partý - hittingur- partý- hittingur

Jæja elskulegu bekkjarsystur
ég og Jensína hittumst aðeins í kringlunni á laugardaginn og vorum að tala um það að nú væri kominn tími á eitt gott partý hjá okkur bekkjarsystrum!
ég legg því til að við höldum partý fyrstu eða aðra helgina í október hvað segiði um það ?
koma svo allar að kommenta !!!!
kv. Nína
:haha:


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.08.2008 18:49:23 / leikskoli

Bekkjarpartý !!!

jæja stúlkur mínar !
hvað segiði um að halda bráðlega bekkjarpartý ? við megum ekki hætta að hittast þó svo skólinn sé búinn !
er stemmari fyrir því ?
kv.Nína



» 22 hafa sagt sína skoðun

07.08.2008 19:38:17 / leikskoli

Bolungarvík!!!

Hæ allar
Var beðin um að skila til ykkar allra að það er laus deildarstjórastaða í leikskólanum á Bolungarvík!!! Er ekki um að gera að breyta aðeins um umhverfi og kíkja á vestfirðina. Það er örugglega mun ódýrara að kaupa eða leigja þar!!!
Endilega kynnið ykkur þetta frekar :)



» 3 hafa sagt sína skoðun

09.07.2008 12:23:23 / leikskoli

Deildarstjórastaða....

Sælar pæjur.

Ég var beðin um að koma því á framfæri til ykkar (sem eru ekki óléttar ;)) að það er laus deildarstjórastaða á leikskólanum Laufskálum frá og með haustinu. 
Ef þið eruð ekki búnar að festa ykkur og/eða viljið breyta til endilega látið mig vita.

Kys og kram og baráttukveðjur til Fanneyjar og co.

Vala Björk.


» 5 hafa sagt sína skoðun

07.06.2008 18:49:32 / leikskoli

útskriftar og afmælisveisla/partý

hæhæ elsku bekkjarsystur

í tilefni því að við erum að útskrfast og ég á afmæli helgina eftir þá langar mig að bjóða ykkur í veislu/partý mánudaginn 16 júní (frí daginn eftir því þá er 17 júní fyrir þá sem kveikja ekki á perunni hahhaha) húsið opnar kl 19 og verður opið svo langt sem okkur sýnist :haha:
vonast til að sjá ykkur sem flestar
viljiði endilega kommenta hér fyrir neðan svo ég viti við hverjum ég má búast ;)
kv. Nína



» 10 hafa sagt sína skoðun

04.06.2008 21:37:01 / leikskoli

Sögur í náttúru og umhverfi

Hæ stelpur mínar

Ég var að velta því fyrir mér hvort að það væri ekki gaman að safna saman sögunum sem við bjuggum til í náttúru og umhverfu munið þið varðandi smádýr eða eitthvað þannig og við gætum búið til safn ;)

Ég las söguna sem ég og Tanja gerðum í vettvangsnámi í fyrra og það lukkaðist alveg svakalega vel :haha:

Endilega látið mig vita hvað ykkur finnst og þið getið sent sögurnar á mig ..... 
erna_1@simnet.is og ég set þetta saman :haha::haha::haha:

Vona að ykkur líði öllum vel og hlakka til að sjá ykkur þann 14.júní.....vá það er að koma að þessu 8|

kv. Erna káta :haha::haha::haha:


» 4 hafa sagt sína skoðun

28.05.2008 23:45:54 / leikskoli

Er bloggið dautt??

kannski kíkir engin af ykkur hingað inn lengur.... ég geri það alltaf af gömlum góðum vana :haha:
Mig langar svo að forvitnast hvar þið eruð að vinna? Veit hvar sumar eru en ekki næstum allar. Ég þarf nú að fara að ákveða mig hvar ég ætla að vinna svo ég geti farið að pota prinsinum mínum inn á einhvern leikskóla um svipað leyti og ég fer á vinnumarkaðinn, sem ég vona að verði eftir næstu jól. :haha:

Svo hvar eruð þið að vinna elskurnar?

kv. Sigurlaug Björk


» 12 hafa sagt sína skoðun

13.05.2008 13:33:49 / leikskoli

3 1/2 dagur!!

Jæja stúlkur, nú er alveg að koma að þessu!!!

Föstudagur 16. maí:

Kokteilboðið fyrir kennarana verður kl 15:30-16:30.

Við eigum pantað borð á sólon kl. 19:00.

Það er ekki hópmatseðill, hver og einn pantar fyrir sig af Express matseðli Sólon. Ég get ekki sett link hér þannig að ég sendi hann bara á ykkur í tölvupósti.


Núna eru skráðir 25 sem fara. Látið mig vita helst fyrir fimmtudag ef einhver forfallast.

Eftir það fjölmennum við upp í skóla og djömmum af okkur rassinn ;)

Þetta verður rosa gaman! Ég hlakka mikið til :)

Kv. Heiða

» 6 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 21:32:14 / leikskoli

næsti föstudagur

jæja stelpur nú fer að líða að herlegheitunum :haha:
eins og þið kannski flestar vitið og hafið séð þá er skhí að auglýsa próflokadjamm um kvöldið 16 maí.... akkúrat þegar við erum að fagna skólalokum..... því langar mig að velta þeirri spurningu upp hvort það sé stemming að mæta uppí skóla eftir matinn á sólon eða eigum við að halda okkur við partýið hjá Tönju ??? held það gæti verið nebbla geggjað gamana að mæta uppí skóla :haha: en það verður sko pottþétt líka stuð hjá Tönju ef við verðum þar
þannig að endilega kommentið stelpur um þetta sem fyrst svo við getum tekið ákvörðun saman sem fyrst :)
kv. Nína



» 12 hafa sagt sína skoðun

09.05.2008 10:06:11 / leikskoli

Klúður!!

Heyriði!

Það hefur komið upp misskilningur!

Kveðjuhófið sem er í dag er fyrir alla! Líka okkur! Eitthvað klúðraðist í skilaboðaleiðinni þar sem við héldum að hófið í dag væri bara fyrir grunnskólakennara. En það er fyrir alla.

Það er búin að vera hefð fyrir þessu í mörg ár, að allir útskriftarnemar bjóða öllu starfsfólki og kennurum skólans í smá boð til að þakka fyrir árin þrjú.

Þið fáið póst núna frá Júlíu sem er formaður stúdentaráðs þar sem hún ítrekar þetta.

Það kostar 1500 krónur, en kannski megum við ganga frá því eftir helgi. Sú sem er að skipuleggja ætlar að vera í bandi við okkur á eftir og láta vita af því.

Endilega sem flestir að reyna að mæta!!!

Kv. Heiða

P.s. það stendur samt ennþá okkar boð fyrir kennara eftir vettvangstengda valið, 16. maí. Það hefur verið hefði í ca 2 ár og er alveg sér hjá okkur :)

» 5 hafa sagt sína skoðun

06.05.2008 15:36:49 / leikskoli

Valnámskeið????

Sælar stúlkur..............ég er í smá vandræðum með að velja valnámskeiðið, svo margt í boði;).......mig langar að vita hvaða námskeið þið hafið verið að taka og hvort þið mælið með einhverju sérstöku námskeiði:)..............Plís verið að duglegar að commenta:klikk: 
Kveðja Jóna mjóna;)

» 9 hafa sagt sína skoðun

29.04.2008 20:26:31 / leikskoli

Foooood

Jæja, ég er loksins búin að hringja og panta borð á sólon, 16. maí kl. 19:30.

Það er eitthvað próflokapartí á efri hæðinni kl. 8 þannig að við verðum bara á neðri hæðinni, sem er bara fínt.

Ég á eftir að tala við framkvæmdastjórann, hann ætlar að búa til matseðla fyrir mig svo við getum valið eittthvað gott. Ég samdi um að við fengjum tveggja rétta máltíð, aðalrétt og eftirrétt, í stað þriggja rétta. Það kostar minna ;)

Anyway, ég læt ykkur vita þegar ég er búin að heyra frá manninum.

Gangi ykkur vel í skýrslugerðinni ;)

Kv. Heiða

» 9 hafa sagt sína skoðun

22.04.2008 15:19:40 / leikskoli

bjóóóóóóóóór

Hverjir ætla á kántrí - bjórkvöld á morgun???


Ingibjörg, sem er orðin ansi bjórþyrst
Drinking

» 1 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 40